Fjallabyggð og Landhelgisgæslan hafa undirritað framlengingu á samningi um þjónustu Fjallabyggðarhafna við varðskipið Freyju sem gildir til 30.apríl árið 2030.

Samningurinn er rammi utan um samstarf Fjallabyggðar og Landhelgisgæslu Ísland er varða markmið aðila að tryggja almannavarnir og öryggi á norðurslóðum og tryggja öflugri leitar – og björgunarþjónustu á svæðinu norðan Íslands.

Bæjarráð Fjallabyggðar fagnar því að Freyja eigi áfram heimahöfn á Siglufirði sem er mikilvægt vegna markmiðs aðila að tryggja almannavarnir og öryggi á norðurslóðum.