Lágheiðin opin
Samkvæmt upplýsingakorti Vegagerðarinnar er Lágheiðin milli Fljóta og Ólafsfjarðar nú fær, en hálkublettir eru á leiðinni. Lágheiðin, þjóðvegur 82 hefur verið ófær frá miðjum nóvember. Engin vetrarþjónusta er á veginum og er almennt beðið með að opna þar til snjór hefur minnkað mikið.