Ferðaþjónustufyrirtækið Sóti Summits hefur kynnt hugmynd að útfærslu upplýsingamiðstöðvar í Fjallabyggð sem yrði hjarta upplýsinga- og kynningastarfs. Erindið var sent til Fjallabyggðar, en sveitarfélagið hefur þegar kallað eftir frekari hugmyndum og greinargerð um málið.
Upplýsingamiðstöð ferðamanna hefur síðustu árin verið staðsett í Bókasafni Fjallabyggðar.
Sóti Summits er 5 ára gamalt fyrirtæki í ferðaþjónustu.