Meistaraflokkur Dalvíkur/Reynis tók þátt í fyrsta sinn á Kjarnafæðismótinu sem hófst núna 5. desember í kvennadeildinni, en þar spila sex lið. Fyrsti leikur kvennaliðs D/R var gegn sterku liði Þórs/KA, en liðin eru í samstarfi með 2.-3. flokk kvenna og eru einnig venslalið síðan í vor.

Leikurinn fór fram í Boganum á Akureyri á föstudaginn. D/R sem leikur í 2. deildinni á Íslandsmótinu, komst óvænt yfir í leiknum 0-1, en Bestudeildar liðið Þór/KA komst fljótlega inn í leikinn og enduðu á að skora 8 mörk og vinna stórsigur.

Arna Sif Ásgrímsdóttir skoraði tvö mörk, en María Dögg Jóhannsdóttir, Hildur Anna Birgisdóttir, Amalía Árnadóttir, Hulda Ósk Jónsdóttir, Sigyn Elmarsdóttir og Eva Dolina skoruðu eitt mark hvor. Lokatölur voru 8‑1 fyrir Þór/KA, en ekki er vitað hver skoraði mark D/R, þar sem leikskýrslu liðsins var ekki skilað inn.

Myndir með fréttinni koma frá Knattspyrnudómarafélags Norðurlands.