Kvennalið Blakfélags Fjallabyggðar lék við Fylki-C í 3. deild kvenna í Digranesi í dag. Leikurinn var í járnum og jafn fyrstu mínúturnar en svo komst BF í gang og náðu yfirhöndinni í stöðunni 9-13 og 10-15. BF seig framúr og komust í góða stöðu 14-20 en þá tók Fylkir leikhlé. BF tók næstu þrjú stig og aftur tók Fylkir hlé til að reyna stöðva BF í stöðunni 14-23.  BF náði að lokum sigri eftir góða hrinu, 17-25.

Fylkir byrjaði með látum í annari hrinu og komust í 6-1 og 10-7. BF tók gott leikhlé í stöðunni 13-10 og komst þá liðið almennilega í gang aftur og skoraði 8 stig í röð og tók Fylkir leikhlé í millitíðinni.

Fylkir kom til baka af harðfylgi og komst yfir 19-18 og settu mikla spennu í leikinn.  BF jafnaði 20-20 og komst svo yfir 20-22 og aftur tók Fylkir hlé.  BF var að lokum sterkara og vann 22-25 og leikinn 0-2.