Kvennahlaupið á Siglufirði

Vegna Covid faraldursins var Kvennahlaupinu á Siglufirði frestað í vor en það verður á morgun, laugardaginn 11. september.
Líkt og undanfarin 17 ár er það Ungmennafélagið Glói sem sér um framkvæmdina á Siglufirði.
Vakin er athygli á að í fyrra voru gerðar þær breytingar að ekki eru seldir bolir á hlaupastöðunum heldur þarf að panta þá í gegnum tix.is en það má mæta í bolum frá fyrri árum og greiða þá aðeins þátttökugjald.
Gjaldið er 500 kr. fyrir 12 ára og yngri og 1.500 kr. fyrir eldri.
May be an image of 4 manns og texti