Knattspyrnuskóli KF og Bolton sem fyrirhugað var að halda 11-15. júní næstkomandi á Siglufirði, verður því miður ekki haldinn vegna ónægrar þátttöku. Síðasti skráningadagur í skólann var föstudagurinn 18. maí og þá höfðu einungis 40 einstaklingar skráð sig, en það er allt of lítil þátttaka og af þeim ástæðum getur KF ekki haldið skólann.

Það gera sér allir grein fyrir því sem hlut eiga að máli að þetta eru mikil vonbrigði, en engu að síður er þetta óumflýjanleg ákvörðun. Biðjumst við velvirðingar á þessu og vonum um leið að þeim sem skráðu sig í skólann vegni vel á knattspyrnuvöllunum landsins í sumar.

 

Stjórn KF.