Knattspyrnu- og íþróttaskóli Knattspyrnufélags Fjallabyggðar hefst mánudaginn 10. júní með kröftugu, fjörugu og fjölbreyttu starfi. Skólinn stendur til 15. ágúst og er umsjónarmaður Björn Hákon Sveinsson. Skráning stendur til föstudagsins 7. júní.  Skólinn verður alla virka daga og hefst kl. 13.

Verðskrá:

  • Allt sumarið aðeins 25000 kr.
  • Mánaðargjald 15000 kr
  • Vikugjald 5000 kr
  • Sumargjald fyrir árgang 2009 er 12500 kr.