Kjörsókn var 74,6% í Dalvíkurbyggð

Síðastliðinn laugardag fóru fram sveitarstjórnarkosningar um allt land. Á kjörskrá í Dalvíkurbyggð voru 1437. Kjörsókn var 74,6%. Til samanburðar má geta að í síðustu sveitarstjórnarkosningum, 2018, var kjörsókn 79,88%.

Niðurstöður kosninganna voru sem hér segir:

B-listi Framsóknar og félagshyggjufólks í Dalvíkurbyggð hlaut 23,5% atkvæða og 2 menn kjörna
D-listi Sjálfstæðisfélags Dalvíkurbyggðar hlaut 32,8% atkvæða og 2 menn kjörna
K-listi Dalvíkurbyggðar hlaut 43,7% atkvæða og 3 menn kjörna

Nýja sveitarstjórn munu því skipa á næsta kjörtímabili 2022-2026:

Helgi Einarsson (K)
Freyr Antonsson (D)
Katrín Sigurjónsdóttir (B)
Katrín Sif Ingvarsdóttir (K)
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir (D)
Gunnar Kristinn Guðmundsson (K)
Lilja Guðnadóttir (B)

 

Heimild: dalvik.is