Knattspyrnufélag Fjallabyggðar heimsótti eitt besta lið Íslands, FH í Borgunarbikarnum í kvöld. Fyrirfram var búist við mjög erfiðum leik á Kaplakrikavelli. Hinn 45 ára markmaður FH, Kristján Finnbogason stóð vaktina í þessum leik. Það er skemmst frá því að segja að FH skoraði 5 mörk í fyrri hálfleik og var staðan 5-0 í hálfleik. Í síðari hálfleik skoruðu FH önnur fjögur mörk og lokatölur 9-0. Sannarlega Davíð og Golíat í kvöld, en gaman fyrir unga og efnilega leikmenn KF að mæta þessu eina besta liði Íslands í dag. Leikskýrslu KSÍ má lesa hér.