Knattspyrnufélag Fjallabyggðar tók á móti Knattspyrnufélagi Vesturbæjar í 16. umferð Íslandsmótsins á Ólafsfjarðarvelli í dag. Kalt, blautt og rok þegar leikurinn fór af stað og um 8 stiga hiti. Fáir mættir í stúkuna þegar leikurinn hófst en nokkrir bílar í skotastúkunni við Hornbrekku. KV var ósigrað í síðustu 5 leikjum í deildinni en KF hafði tapað síðustu tveimur deildarleikjum og ætluðu að selja sig dýrt. KV gat með sigri blandað sér í toppbaráttuna en liðið var í 5. sæti fyrir leikinn og KF í 7. sæti. KV vann fyrri leik liðanna í vor 5-3 en KF vann heimaleikinn í fyrra í deildinni og jafntefli á útivelli. Búist var við erfiðum leik.
Það er Siglufjarðar Apótek og Kjörbúðin Siglufirði sem styrkja umfjöllun um leiki meistaraflokks KF í sumar.
Umfjöllun:
KF byrjaði með boltann og voru í sínum bláum treyjum og léku í átt að Hornbrekku. KV var í hvítum búningum og léku í átt að grunnskólanum í fyrri hálfleik.
KF gerði fyrsta mark leiksins á 5. mínútu eftir gott samspil fyrir utan vítateig KV og var Jhoel Adrian Sarraude laus og slapp á milli varnarmanna KV og skoraði gott mark. Staðan 1-0.
KF komst í 2-0 á 10. mínútu þegar Jakob Auðun skoraði með skalla eftir hornspyrnu frá vinstri.
KV minnkaði muninn úr vítaspyrnu á 16. mínútu og skaut sóknarmaður liðsins á mitt markið. Staðan 2-1.
Jón Frímann Kjartanson skoraði þriðja mark KF á 27. mínútu með góðu skoti innan teigs, staðan orðin 3-1. Agnar Óli Grétarsson skoraði næst með föstu skoti og kom KF í 4-1 á 29. mínútu.
KV minnkaði muninn aftur eftir hraða sókn og gott spil á 44. mínútu, staðan orðin 4-2 og þannig var staðan í hálfleik.
Gestirnir skoruðu gott mark í síðari hálfleik með föstu skoti sem fór í leikmann KF og er skráð sjálfsmark, og var staðan orðin 4-3 og mikil spenna komin í leikinn eftir að KF hafði verið með gott forskot.
KV náði inn jöfnunarmarki á 90. mínútu og endaði leikurinn 4-4 á Ólafsfjarðarvelli.
Svekkjandi hjá KF að hafa misst niður svona góða forystu í þessum leik.



