Knattspyrnufélag Fjallabyggðar tók á móti Hetti frá Egilssstöðum á Ólafsfjarðarvelli í 12. umferð Íslandsmótsins. Liðin voru í 6.-7. sæti deildarinnar fyrir þennan leik, Höttur með 14 stig og KF með 16 stig. Bæði lið með sömu markatölu en Höttur er það lið sem hefur fengið á sig fæst mörk í deildinni ásamt toppliðinu Víði, eða aðeins 14 mörk. KF hafði aðeins fengið á sig 15 mörk í deildinni, en báðum þessum liðum hefur ekki gengið eins vel að skora og liðunum í efri hluta deildarinnar, KF með 16 mörk og Höttur 15 mörk eftir 11 leiki.
Bæði lið spila þéttan varnarleik og var búist við jöfnum leik. Fyrri leikur liðanna í sumar fór 0-0 á Egilsstöðum.
Í lið KF vantaði nokkra leikmenn, en Marinó Snær var meiddur ásamt Pietro Fontana og Hafþóri Baldurs. Á bekknum var Grétar Áki Bergsson, en hann hefur verið meiddur í langan tíma og er að koma til baka. Annars var bekkurinn fullskipaður og margir ungir leikmenn að koma upp í meistaraflokk hjá KF.
Það er Siglufjarðar Apótek og Kjörbúðin Siglufirði sem styrkja umfjöllun um leiki meistaraflokks KF í sumar.
Umfjöllun:
Það var KF sem byrjaði með boltann og lék í áttina að Hornbrekku. Gestirnir voru í hvítum búningum og svörtum stuttbuxum en KF í sínum venjulegu bláum búningum. Það var ágætlega mætt í stúkuna en hitinn var yfir 21 gráðu þegar leikurinn byrjaði en uppselt var í skotastúkunni, en þar voru rúmlega 15 bílar mættir til að horfa á leikinn. Völlurinn var grænn og flottur og hefur lagast mikið frá því í vor. Höttur lék í 4-3-3 leikkerfinu og voru þéttir fyrir og spiluðu fastan leik. Hilmar Símonarson var fyrirliði KF í þessum leik.
Liðin þreifuðu fyrir sér í fyrri hálfleik án þess að opna sig mikið. Helst var hætta í föstum leikatriðum og þeim hornspyrnum sem komu. Staðan var 0-0 þegar dómarinn flautaði til leikhlés.
Baráttan hélt áfram í síðari hálfleik og sótti KF meira eftir því sem leið á leikinn. Höttur spilaði áfram fast og nokkur óþarfabrot kom þegar leið á leikinn.
Grétar Áki kom inná á 68. mínútu fyrir Bjarma og fór Áki beint á miðjuna. Agnar Óli kom inná skömmu síðar fyrri Ljuba Delic og fór hann beint í sóknina.
Undir lok leiksins fékk KF gott færi þegar boltinn kom frá hægri kanti en sóknarmaður KF skallaði boltann yfir. Gestirnir voru byrjaðir að tefja aðeins á síðustu mínútum leiksins, en KF sótti til sigurs.
KF gerði svo tvær skiptingar í uppbótartíma.
Í lokasókn Hattar þá fengu þeir algjört dauðafæri en markmaður KF lokaði vel varði boltann í horn. Þarna var KF stálheppið á fá ekki á sig mark þegar vörnin opnaðist illa. Dómarinn flautaði leikinn af í framhaldinu og niðurstaða 0-0 jafntefli.
KF liðið er núna ósigrað í 7 leikjum í deildinni.






