Knattspyrnufélag Fjallabyggðar mætti Augnablik á Ólafsfjarðarvelli í 20. umferð Íslandsmótsins í 3. deild karla. KF var ósigrað í síðustu fjórum leikjum. Augnablik var með fjóra tapleiki af síðustu 5 deildarleikjum og voru í 10. sæti deildarinnar og rétt við fallsvæðið. KF gat stillt upp sterku liði og eru fáir leikmenn í meiðslum núna.Það vantaði þó í hópinn Ljuba Delic og Grétar Áka. KF vann fyrri leik liðanna örugglega í sumar en jafntefli fór í báðum leikjum liðanna í deildinni árið 2024..
Það var bjart og fallegt veður og 6.5 stiga hiti þegar leikurinn hófst.
Það er Siglufjarðar Apótek og Kjörbúðin Siglufirði sem styrkja umfjöllun um leiki meistaraflokks KF í sumar.
Umfjöllun:
Augnablik byrjaði með boltann og lék í áttina að grunnskólanum. KF vann boltann fljótt og tóku yfir stjórn leiksins. Það var lítið um góð færi fyrstu 10 mínútur leiksins en KF átti eitt gott skot fyrir utan vítateig en markmaður Augnabliks varði vel. Augnablik reyndi að þétta miðjuna og KF reyndi að brjóta sér leiðir í gegn. Augnablik sótti í sig veðrið og átti nokkrar ágætar sóknir um miðjan fyrri hálfleik, en í tvígang var dæmd rangstæða.
Augnablik fékk innkast á vinstri kanti nærri vítateig seint fyrri hálfleik. Boltinn barst inn á vítateig þar sem sóknarmaður tók boltann niður og náði góðu skoti á markið sem Chad Smith náði ekki að verja. Staðan orðin 0-1 eftir nokkuð jafnan leik.
KF komst í ágætis færi nokkrum mínútum síðar en boltinn fór framhjá markinu eftir fast skot.
Staðan 0-1 í hálfleik, en KF byrjaði með boltann í síðari hálfleik en misstu boltann strax í fyrstu sókn. KF reyndi að búa sér til færi, en Augnablik spilaði ágætis varnarleik og lokuðu vel miðjunni.
Agnar Óli kom inná í síðari hálfleik hjá KF og fór beint í framlínuna.
Augnablik fékk hornspyrnu á 70. mínútu og sendu góðan bolta inn á teig þar sem leikmaður tók boltann niður og náði góðu skoti á markið sem Chad Smith náði ekki að verja og vörnin náði ekki að loka á skotið. Staðan orðin 0-2.
Augnablik bakkaði töluvert eftir annað markið og lokuðu vel svæðum á meðan KF reyndi að finna sér svæði. Elís Beck kom inná fyrir KF og varnarmaður fór út af. Sóknin var þung í síðari hálfleik en markmaður Augnalbiks átti góðan dag.
Leikmaður Augnabliks fékk rautt spjald eftir tæklingu á 90. mínútu, en hann hafði áður fengið gult spjald og léku þeir einum færri eftir þetta.
Sókn KF var þung í síðari hálfleik en varnarleikur Augnabliks var góður.
Fleiri mörk voru ekki skoruð og vann Augnablik 0-2 sigur.




