Efsta lið 2. deildar karla í knattspyrnu sigraði KF úr Fjallabyggð stórt í 19. umferðinni nú um helgina. Fjarðabyggð skoraði fyrstu 2 mörkin á upphafsmínútum leiksins og voru með örugga 2-0 forystu eftir 9. mínútur. Á 52. mínútu kom svo þriðja mark heimamanna úr víti og tæpum 20 mínútum síðar kom loka markið, 4-0 og ljóst að Fjarðabyggð hefur tryggt sér sæti í 1. deildinni að ári.  Brynjar Jónasson gerði þrennu í leiknum og er með 16 mörk í 19 leikjum í sumar í deildinni. KF er með 23 stig eftir 19 leiki og í 7. sæti deildarinnar. Leikskýrslu KSÍ má lesa hér.