Knattspyrnufélag Fjallabyggðar mætti Víði í Garði í 15. umferð Íslandsmótsins í 3. deild karla. Leikurinn fór fram á Nesfisk-vellinum í Garði, en þar er nýlega búið að vígja nýja stúku við völlinn. Víðir hefur einnig styrkt sig núna í júlí glugganum með fjórum nýjum leikmönnum, þar af þremur ungum lánsmönnum. Víðir vann fyrri leik liðanna í sumar 1-2 og einnig báða leikina þegar liðin voru saman í 2. deildinni árið 2020. Víðir eru í toppbarátunni og gátu náð 2. sæti deildarinnar með sigri, að minnsta kosti tímabundið.
Það er Siglufjarðar Apótek og Kjörbúðin Siglufirði sem styrkja umfjöllun um leiki meistaraflokks KF í sumar.
Umfjöllun:
KF mætti með þunnskipaðan hóp í þennan leik, aðeins tveir varamenn tiltækir á bekknum og vantaði því nokkra leikmenn í hópinn.
Víðismenn voru meira með boltann í fyrri hálfleik og lágu frekar þungt á KF mönnum og voru ógnandi í föstum leikatriðum. Fyrst mark leiksins kom seint í fyrri hálfleik eftir góða hornspyrnu frá vinstri, góður bolti á miðjan vítateig KF manna þar sem sóknarmaður Víðis stökk upp og skallaði inn. Þarna var dekking hjá KF ekki nægjanlega góð. Staðan 1-0 og þannig var staðan í hálfleik.
Víðir gerði eina skiptingu í hálfleik og aðra fljótlega í upphafi síðari hálfleiks. Víðir hélt áfram að pressa á KF og léku boltanum vel á milli sín og sköpuðu hættu þegar þeir komust að endamörkum og náðu fyrirgjöfum.
Víðir gerði svo út um leikinn með tveimur mörkum á 61. mínútu og 63. mínútu og komust í 3-0.
Víðir gerði þrefalda skiptingu þegar korter var eftir af leiknum og KF tvöfalda skiptingu og komu báðir varamenn liðsins inná.
Undir lok leiksins gerði Víðir aftur tvö mörk með skömmu millibili, á 83.mín. og 85. mín. Staðan orðin 5-0 fyrir heimamenn.
Fleiri mörk voru ekki skoruð og vann Víðir leikinn 5-0 og voru betra liðið.
Tveir tapleikir í röð hjá KF í deildinni.



