Á aðalfundi knattspyrnudeildar Fjallabyggðar 16. júní 2020, var samþykkt einróma að skora á bæjarstjórn Fjallabyggðar að meirihluti bæjarstjórnar
efni kosningaloforð sitt um að gerður verði gervigrasvöllur á Ólafsfirði á þessu kjörtímabili.

Til stóð að hefja framkvæmdir í haust en vegna Covid-19 var þessum framkvæmdum frestað í ár. Fundarmenn geta skilið þá afstöðu, mikilvægt er og skorað er á bæjarstjórn að taka þá afstöðu að hefja framkvæmdir á gervigrasvellinum á næsta ári.

Með bættri íþróttaaðstöðu mun verða aukning á iðkendum og það hefur komið í ljós og sýnt sig á Dalvík eftir að framkvæmdum við gervigrasvöllinn var lokið þar.
Nær öll sveitarfélög á landinu með íbúa yfir 1500 manns hafa komið upp gervigrasvelli, þetta er þróun til að bæta íþróttaaðstöðu og við getum ekki setið eftir í þeirri þróun ef við viljum búa í góðu sveitarfélagi, sem er umhugað um velferð íþróttafólks og við trúum því að meirihluti bæjarstjórnar í Fjallabyggð sé með okkur í því liði.

Þetta kemur fram í bréfi stjórnar Knattspyrnufélags Fjallabyggðar til bæjarstjórnar Fjallabyggðar.

Svar frá Bæjarráði Fjallabyggðar

Bæjarráð Fjallabyggðar leggur áherslu á að eins og fram kemur í erindi stjórnar knattspyrnudeildar var framkvæmdum frestað vegna þeirrar óvissu sem ríkti og ríkir enn í efnahagsmálum vegna Covid-19. Ákvörðun um annað hefur ekki verið tekin en bæjarráð vill koma því á framfæri að nú liggur fyrir að tekjur bæjarfélagsins dragist saman um rúmar 80 mkr. vegna lækkunar á framlagi jöfnunarsjóðs. Gjalddögum fasteignagjalda til fyrirtækja hefur verið seinkað þannig að tekjuáætlun vegna fasteignagjalda mun ekki standast á árinu auk þess sem skipulag stofnana vegna nauðsynlegra forvarna og sóttvarna hefur haft í för með sér aukinn rekstrar- og/eða launakostnað frá því sem áætlað var.