Umfjöllun um leiki Knattspyrnufélags Fjallabyggðar í vor og sumar verða í boði Siglufjarðar apóteks sem eru aðalstyrktaraðili. Siglufjarðar Apótek leggur mikla áherslu á að bjóða framúrskarandi og persónulega þjónustu og vörur á góðu verði. Siglufjarðar Apótek var stofnað árið 1928 og er elsta starfandi apótek landsins í einkaeigu.
Knattspyrnufélag Fjallabyggðar mætti Knattspyrnufélagi Austfjarða, sem er sameinað lið Fjarðabyggðar og Leiknis. Liðin mættust í vor fór leikurinn 2-2 á heimavelli KFA. KF þurfti á sigri að halda þar sem þeir hafa verið að síga niður töfluna eftir misjafnt gengi í sumar. KFA var með fjóra sigra fyrir þennan leik en KF aðeins tvo sigra. Báðir nýju leikmenn KF voru komnir í byrjunarliðið og einnig Hákon Hilmarsson, vinstri bakvörður sem hefur ekki átt fast sæti í liðinu undanfarið.
Austfirðingar hafa verið í einhverjum markmanns vandræðum með hinn 39 ára gamli Unnar Elí Jóhannsson var í byrjunarliðinu að leika sinn fyrsta leik fyrir félagið en hann fékk leikheimild 20. júlí eftir skipti frá Boltafélagið Norðfjarðar, en hann var einnig skráður á mála hjá Víði og Austra í byrjun árs.
Hvorugu liðinu tókst að skora í fyrri hálfleik þrátt fyrir ágætar tilraunir og var staðan því 0-0 þegar dómarinn flautaði til leikhlés. Þjálfari KF las hressilega yfir sínum mönnum í hléinu og komu þeir mun ákveðnari til leiks í byrjun síðari hálfleiks.
Ekki liðu nema fimm mínútur þar til heimamenn í KF voru búnir að skora en Þorvaldur Daði Jónsson átti markið og var staðan því 1-0 Aðeins 10 mínútum síðar var KF aftur búið að skora þegar Atli Snæ Stefánsson skoraði og breytti stöðunni í 2-0. Leikur KFA hrundi gjörsamlega á þessum kafla og bætti KF í sóknarleikinn. Þorvaldur Daði Jónsson skoraði aftur á 67. mínútu og staðan orðin 3-0. Aðeins tveimur mínútum síðar eða á 69. mínútu skoraði Atli Snær Stefánsson sitt annað mark og kom KF í þægilega stöðu 4-0 þegar tæpar 20 mínútur voru eftir.
Þjálfari KF gat leyft sér að gera fjórar skiptingar eftir fjórða markið og kom Daniel Kristianesen inná fyrir Ljuba Delic, Cameron Botes inná fyrir Hákon Leó, Hjörvar Már inná fyrir Atla Snæ og Marinó Snær inná fyrir Þorvald Daða.
Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum og lokatölur 4-0 og frábær sigur heimamanna sem þarf að byggja á í næstu leikjum. Frábær kafli hjá KF í byrjun síðari hálfleiks þar sem þeir skoruðu fjörgur mörk á tæpum 20 mínútum og kláruðu leikinn. KF lyfti sér tímabundið upp í 6. sæti deildarinnar með þessum sigri, en nokkrum leikjum er enn ólokið í umferðinni.

