Knattspyrnufélag Fjallabyggðar hefur hafið ársmiðasölu á heimaleiki meistaraflokks karla fyrir árið 2025. Liðið leikur nú í 3. deildinni. Þetta er stærsta og mikilvægasta fjáröflun í rekstri meistaraflokks. Það er hægt að sækja ársmiðann í gegnum smáforritið Stubb daginn fyrir fyrsta heimaleik.
Ársmiðinn kostar 15.000 krónur:
- Innifalið er kaffi og veglegt bakkelsi í hálfleik.
- Togarasjómenn fá miðann á 9000 kr
- Árgangar 2008-2006 fá ársmiðan á 9000 kr
- Árgangur 2009 og yngri fá frítt á leiki liðsins.
Sendu upplýsingar á heimasíðu KF á fésbókinni.