Knattspyrnumaðurinn Marinó Snær Birgisson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Knattspyrnufélag Fjallabyggðar.  Hann hefur verið einn af lykilmönnum félagsins undanfarin ár og var fyrirliði liðsins á liðnu tímabili.
Marinó lék upp yngri flokkana með Þór á Akureyri og hefur leikið með Magna og Fjarðabyggð í meistaraflokki auk KF.  Hann spilaði fyrst sem lánsmaður hjá KF árið 2018 en hafði félagskipti aftur 2020 og hefur hann verið hjá liðinu frá því ári.
Hann á að baki 154 leiki með meistaraflokki þessara liða og gert 21 mark.  Um sumar lék hann 15 leiki í 3. deildinni og skoraði 3 mörk.