Það hefur verið mikið að gera síðustu vikur hjá yngri flokkum KF og sameiginlegum liðum KF/Dalvíkur. KF sendir alls 5 lið á Reycup eða um 70 keppendur sem er fjölmennasti hópurinn sem félögin hafa sent til leiks. Krakkarnir eru í 3.-4. flokki drengja og stúlkna hjá KF/Dalvík. Eftir mótið hafa yngri flokkarnir verið að spila 8 helgar í röð og er því kærkomið að liðin fá frí um verslunarmannahelgina. Umfjöllun, myndir og úrslit leikja liðanna á Reycup verða birtar hér á síðunni næstu daga eins og undanfarin ár. Reycup hefst í dag hjá liðum á höfuðborgarsvæðinu en landsbyggðarliðin koma sér fyrir á gististöðum og taka þátt í opnunarhátíðinni í kvöld.
Um síðustu helgi sendi KF fjögur lið í 8.flokk og fjögur lið í 7.flokk til leiks á STrandarmóti Jakó á Dalvík, eða um 40 keppendur. Tíu félög tóku þátt í mótinu sem er dagsmót og var leikið á gervigrasinu á Dalvík.
Á laugardaginn fór fram hið stórskemmtilega Strandarmót JAKO á Dalvík en þar eru það allra yngstu iðkendurnir sem fá að njóta sín og spila fótbolta. Fjölmörg lið mættu á mótið frá 10 félögum og frá KF mættu fjögur lið í 8.flokk og 4 lið í 7.flokk til leiks eða um 40 keppendur.