Knattspyrnufélag Fjallabyggðar og Dalvík/Reynir mættust í æfingaleik á Dalvíkurvelli í dag. KF strákarnir eru nýlega komnir heim eftir vel heppnaða æfingaferð til Danmerkur. Dalvík/Reynir hefur verið að spila í Lengjubikarnum og í Mjólkurbikarnum síðustu vikur. Búist var við hörkuleik eins og alltaf þegar þessi nágrannalið mætast.
Mikið var um mörk og vann KF leikinn 3-6 með þremur mörkum frá Jhoel sem er nýr leikmaður liðsins, Hilmar Símonarson skoraði tvennu, leikmaður nr. 17, Sigurður, skoraði svo eitt mark.