Knattspyrnufélag Fjallabyggðar mætti Augnabliki í 11. umferð Íslandsmótsins í 3. deild karla. Augnablik var í toppsætinu fyrir leikinn og var ósigrað og aðeins fengið á sig 9 mörk í 10 leikjum og er besta varnarlið deildarinnar. KF var í 8. sæti, þremur stigum frá fallsæti fyrir leikinn en gat lyft sér upp í 5.-6. sæti með sigri.
Í lið KF vantaði Jordan Damachoua sem var ekki á leikskýrslu, en hann er markahæstur í liðinu með 3 mörk. Einnig vantaði Marinó Snæ Birgisson, næstmarkahæsta mann liðsins með 2 mörk. Hilmar Símonarson og Örn Elí voru heldur ekki á leikskýrslu.
Ljubomir Delic var kominn í byrjunarliðið og lék á miðjunni, hann hefur mest verið að koma inná sem varamaður á þessu tímabili en hefur verið lykilmaður í liðinu undanfarin ár. Á bekknum var svo Vitor Thomas, en hann hefur ekki spilað mótsleik í deildinni í ár, líklega verið frá vegna meiðsla. Frábært að sjá hann aftur í hópnum.
Siglufjarðar Apótek er aðalstyrktaraðili umfjallana um meistaraflokk KF í sumar eins og undanfarin ár. Á heimasíðu Siglufjarðar Apóteks getur þú pantað lyf og keypt vítamín og bætiefni, hjúkrunarvörur og snyrtivörur.
Umfjöllun:
Fyrri hálfleikur var jafn og fátt um góð færi. Gestirnir voru meira með boltann og héldu honum ágætlega án þess að opna vörn KF. Leikurinn var frekar hægur í fyrri hálfleik og voru liðin að þreifa fyrir sér.
Staðan var 0-0 í hálfleik.
Síðari hálfleikur byrjaði fjörlega. Augnablik fékk vítaspyrnu eftir nokkrar mínútur þegar varnarmaður KF rakst utan í sóknarmann Augnabliks sem féll með tilþrifum og dæmdi dómarinn strax vítaspyrnu. Augnablik skoraði örugglega og voru komnir yfir 0-1.
Nokkrum mínútum síðar var dæmt vítapspyrna á hinum vallarhelminginum þegar boltinn virtist fara í hendi leikmanns Augnabliks. Brendan Koplin leikmaður KF steig á punktinn og skoraði örugglega og var staðan orðin 1-1. Kærkomið mark hjá Brendan sem hafði ekki skorað síðan í byrjun júní og var þetta hans annað mark fyrir félagið.
KF lék vel næstu mínútur og voru hættulegir fram á við og voru óheppnir að skora ekki annað mark. Agnar Óli átti nokkur löng innköst sem skapaði mikla hættu og í eitt skiptið missti markmaður gestanna boltann en enginn leikmaður KF var nógu nærri til að nýta sér það. Góður kafli kom hjá KF eftir jöfnunarmarkið.
Augnablik komst meira inn í leikinn þegar leið á hálfleikinn og sóttu á mörgum mönnum og bakkaði vörn KF full mikið.
Þorsteinn Már Þorvaldsson kom inná fyrir Ljubomir Delic á 61. mínútu.
Vitor Thomas kom inná fyrir Agnar Óla hjá KF á 76. mínútu. Hans fyrsti leikur í langan tíma og gott að sjá hann inn á vellinum.
Ragnar Daníel Eiríksson kom svo inná undir lok leiksins þegar leikmaður KF meiddist lítillega og bað um skiptingu.
Liðin skiptust á að sækja og voru nokkur færi sem komu en nýttust ekki undir lok leiksins.
Niðurstaðan 1-1 jafntefli.
Ekki slæm úrslit fyrir KF, en með smá heppni þá hefði liðið getað unnið þennan leik, en jafntefli sanngjörn niðurstaða.

