Knattspyrnufélag Fjallabyggðar og Sindri frá Hornafirði mættust í 13. umferð Íslandsmótsins í 3. deild karla á Ólafsfjarðarvelli. Sindri var fyrir leikinn í fallsæti og höfðu tapað síðustu 5 leikjum á meðan KF var ósigrað í síðustu 5 leikjum í deildinni. KF gat komist í 6. sæti deildarinnar með sigri í þessum leik en jafntefli fór í fyrri leik liðanna á Íslandsmótinu. Búist var við mikilli baráttu eins og jafnan er þegar þessi lið mætast.
Það er Siglufjarðar Apótek og Kjörbúðin Siglufirði sem styrkja umfjöllun um leiki meistaraflokks KF í sumar.
Umfjöllun:
KF lék í áttina að Hornbrekku í fyrri hálfleik og Sindri í átt að grunnskólanum. Bæði lið fengu færi á fyrstu mínútum leiksins. Sindri var rétt búnir að ná inn marki þegar markmanni KF mistókst að hreinsa frá og náði sóknarmaður frákastinu sem stefndi í netið en Chad Smith var fljótur að ná til boltans og koma í veg fyrir mark. Næst var KF í góðu færi á hinum vallarhelminginum, en Ljuba Delic var duglegur að dæla boltanum í opin svæði og skapaðist oft hálffæri. KF fékk nokkrar hornspyrnur á fyrstu mínútum leiksins og gekk Sindra illa að koma boltanum í burtu.
Á 9. mínútu kom fyrsta mark leiksins og var það KF sem gerði markið. Staðan 1-0. Markið gerði Jhoel Adrian Sarraude
KF hélt áfram að pressa og voru meira með boltann og fengu nokkur tækifæri. Eftir eina skyndisóknina skoraði KF aftur, staðan 2-0 eftir um 20 mínútur og var það Ljubomir Delic sem gerði markið. Nokkrir leikmenn voru farnir að haltra eftir nokkur návígi og var Thomas Lamille hjá KF aðeins haltur en náði að jafna sig aftur um miðjan fyrri hálfleik.
KF átti góða skyndisókn upp vinstri kantinn á 30. mínútu og náðu góðri fyrirgjöf inn á teig en sóknarmaður KF skallaði boltann yfir markið. Færi héldu áfram að koma.
Þjálfari Sindra gerði tvöfalda skiptingu á liðinu eftir rúmar 30 mínútur og fór einn varamaðurinn í miðju varnarinnar og annar á miðjuna. Skömmu síðar var ljótt brot á vallarhelmingi Sindra þegar leikmaður KF lá í grasinu eftir ljóta tæklingu og þurfti aðhlynningu. Aðeins gefið gult spjald og ekkert varð úr aukaspyrnunni.
Rétt fyrir hálfleik varði markmaður Sindra vel í tvígang eftir þunga sókn KF. Staðan var 2-0 í hálfleik og var KF í þægilegri stöðu og var góð barátta í liðinu.
Síðari hálfleikur var ekki eins opinn en KF fékk þó færi eftir skyndisóknir en markmaður Sindra varði vel.
Tveir ungir og framtíðarmenn liðsins komu inn á á 65. mínútu, þeir Agnar Óli Grétarsson sem fór í sóknina og Sebastían Amor Óskarsson í vinstri bakvörðinn. Þeir skiluðu sínu vel og gaman að sjá þessa ungu stráka koma inná og skila sínu hlutverki vel. Örn Elí Gunnlaugsson Elis Beck Kristófersson komu inná hjá KF þegar skammt var eftir.
Fleiri mörk komu ekki leiknum og vann KF öruggan 2-0 sigur. Liðið er nú með 20 stig í 6. sæti deildarinnar.






