Knattspyrnufélag Fjallabyggðar mætti Reyni Sandgerði á Ólafsfjarðarvelli í 14. umferð Íslandsmótsins. Reynir var í 3. sæti deildarinnar fyrir leikinn, tveimur stigum frá toppliði Tindastóls. Reynir hafði unnið þrjá leiki í röð fyrir þennan leik, höfðu skoraði 38 mörk í deildinni, 20 mörkum fleiri en KF. Þjálfari Reynis er Tommy Nielsen sem var áður leikmaður FH. Tveir markahæstu menn deildarinnar eru í Reyni, Ingólfur Sigurðsson, sem var ekki með í þessum leik og Jordan Smiley, en hann var í byrjunarliðinu. Báðir leikmenn voru með 10 mörk í deildinni. Sævar Gylfason leikur með Reyni, en hann var áður á mála hjá KF í fjögur tímabil.

KF var í 6. sæti fyrir leikinn með 20 stig og gátu með sigri minnkað bilið í 5. sæti þar sem KV situr. KF hefur verið að fá leikmenn úr meiðslum og var Marinó Snær, Pietro og Áki, ásamt fleiri sterkum leikmönnum á bekknum. Liðin hafa fylgst að í 3. deildinni sl. 3 ár. Reynir vann fyrri leik liðanna í vor í deildinni og einnig báða leikina á tímabilinu 2025. Tímabilið 2024, 2022, 2021 og 2019 þá vann KF heimaleikinn á móti Reyni. Þessi leikur var númer 15 sem liðin eru að mætast frá árinu 2017 í deildinni og í Lengjubikar.Liðin eru því nokkuð kunnug um styrkleika og veikleika hvors annars.

Þegar leikurinn hófst var um 9 stiga hiti og norðan átt með 6 m/s.

Það er Siglufjarðar Apótek og Kjörbúðin Siglufirði sem styrkja umfjöllun um leiki meistaraflokks KF í sumar.

Umfjöllun:

Jakob Auðun var fyrirliði KF í þessum leik. KF lék í áttina á grunnskólanum í fyrri hálfleik og Reynir í átt að Hornbrekku. Þar voru 13 bílar í skotastúkunni að fylgjast með leiknum.

Bæði lið þreifuðu fyrir sér fyrstu mínútur leiksins í leit að færi. Gestirnir voru snöggir á boltann og létu hann ganga hratt og beittu skyndisóknum. Reynir náði tökum á miðjunni og áttu skallaboltana þar. Eftir góðan skalla frá miðju náðu þeir góðri sókn upp vinstri kantinn og kom góð sending innfyrir vörn KF og var það sóknarmaður Reynis sem náði til boltans og skoraði gott márk. Staðan orðin 0-1 og markið skráð á 38. mínútu. KF hélt áfram að reyna búa til færi og var góð barátta í liðinu.

Reynir skoraði aftur mark úr skyndisókn sem kom nánast úr engu færi á lokamínútum fyrri hálfleiks, sóknarmaður snéri á varnarmann og náði föstu og lúmsku skoti á markið sem markmaður KF náði ekki að verja. Markið skráð á 44. mínútu. Þremur mínútum síðar var komið leikhlé. Staðan var 0-2 í hálfleik.

Eftir um 8 mínútur í síðari hálfleik átti Reynir hraða sókn og náðu góðu skoti sem fór rétt framhjá markinu. Baráttan á miðjunni hélt áfram.

Gera þurfi um 10 mínútna hlé á leiknum í síðari hálfleik þegar leikmaður KF meiddist eftir sprett og tæklingu. Sjúkrabíll kom inn á völlinn og var leikmaður fluttur á næsta sjúkrahús til aðhlynningar.

KF reyndi að koma inn marki undir lokin og settu fleiri leikmenn í sóknina og var vörnin oft fáliðuð þegar Reynir fékk boltann og fór í hraða sókn.

Rétt undir lok leiksins fékk Reynir innkast og var boltanum kastað inn að teig þar sem sóknarmaður gaf til baka og fékk aftur stungu sendingu inn á teig, markmaður KF náði ekki til boltans og kom sending fyrir þar sem sóknarmaður Reynis skoraði einfalt mark.  Markið skráð á 90. mínútu leiksins. Staðan orðin 0-3 og lítið eftir.

KF náði ekki að komast á blað og vann Reynir 0-3 sigur og eru í toppbaráttunni.