Knattspyrnufélag Fjallabyggðar mætti Reyni frá Sandgerði í 19. umferð á Íslandsmótinu í 2. deild karla. Bæði lið voru í bullandi fallbaráttu fyrir þennan leik og var mikið í húfi. KF var fórum stigum frá öruggu sæti fyrir þennan leik og þurftu sannarlega öll stigin þrjú. KF stillti upp sterku liði, en nokkrir leikmenn eru þó á meiðslalista og sátu á bekknum í liðstjórn. Sævar Þór Fylkisson og Ljubomir Delic voru meðal liðstjórnar í dag og ekki leikhæfir. Langt síðan Ljubomir hefur verið í leikmanna hópnum, en vonandi verður hann kominn fljótlega aftur í liðið.
Siglufjarðar Apótek er aðalstyrktaraðili umfjallana um meistaraflokk KF í sumar eins og undanfarin ár. Á heimasíðu Siglufjarðar Apóteks getur þú pantað lyf og keypt vítamín og bætiefni, hjúkrunarvörur og snyrtivörur.
Fyrri leik liðanna lauk með 1-1 jafntefli í Sandgerði. Flest stig KF í sumar hafa komið á heimavelli, en þar hefur liðið unnið 4 leiki, gert tvö jafntefli og tapað þremur leikjum. Liðið hefur enn ekki unnið leik á útivelli, en gert eitt jafntefli þar og tapað 8 leikjum. Reynir hefur unnið tvö útileiki en aðeins unnið einn heimaleik á Íslandsmótinu.
Staðan er svolítið þannig fyrir botnliðin, það þau vonast eftir að liðin fyrir ofan tapi stigum til að minnka bilið og auðvitað að vinna sína leiki!
Reynir hafði tapað fjórum af síðustum 5 leikjum en KF hafði tapað þremur af síðustu 5 leikjum. Það var búist við jöfnum leik í Ólafsfirði.
Umfjöllun:
Völlurinn var nokkuð blautur eftir látlausa rigningu síðustu daga í Fjallabyggð, en heimamenn eru öllu vanir.
Það var mikið undir í leiknum og fóru liðin varlega af stað í fyrri hálfleik. Gestirnir þurftu að gera skiptingu á 33. mínútu þegar fyrirliði þeirra meiddist, áfall fyrir liðið. KF fékk hornspyrnu á 41. mínútu og skoraði Jordan Damachoua fyrsta markið, staðan 1-0 og þannig var það þegar dómarinn flautaði til hálfleiks. Bæði lið fengu ágætis færi í fyrri hálfleik en KF leiddi með einu marki.
Allt stefndi í sigur KF, en á 81. mínútu skorar Reynir með skallamarki og staðan skyndilega orðin 1-1, mark frá Kristófer Dan, leikmanni númer 9. Ekki úrslit sem hjálpa hvorugu liðinu. Enn var tími til að bæta við mörkum.
Reynir Sandgerði gerðu hvað þeir gátu til að ná inn öðru marki eftir þungar sóknir, en inn vildi boltinn ekki hjá þeim. KF náði hinsvegar góðri skyndisókn undir lok leiksins og tryggðu sér dýrmætan sigur. Markið skoraði Vitor Vieira, en hann kom inná sem varamaður.
Lokatölur 2-1.
KF komnir með 18 stig og þurfa því að fara treysta á hagstæð úrslit í síðustu umferðum Íslandsmótsins og vinna eigin leiki.
Frábær úrslit fyrir KF en tæpara mátti það ekki standa.
Siglufjarðar Apótek er aðalstyrktaraðili umfjallana um meistaraflokk KF í sumar eins og undanfarin ár. Á heimasíðu Siglufjarðar Apóteks getur þú pantað lyf og keypt vítamín og bætiefni, hjúkrunarvörur og snyrtivörur.


