Knattspyrnufélag Fjallabyggðar mætti Hetti/Huginn í gær í Lengjubikarnum. Leikurinn fór fram á Akureyri í Boganum.
Höttur/Huginn var án stiga eftir tap í fyrstu umferðinni gegn KFA. KF var með þrjú stig eftir sigur gegn Völsungi.
KF byrjaði með nokkra unga leikmenn í byrjunarliðinu, en á bekknum voru sterkir leikmenn eins og Jordan Damachoua, Akil De Freitast og Daniel Kristiansen sem voru tilbúnir að koma inná.
KF var aðeins 10 mínútur að skora fyrsta mark leiksins þegar Sindri Sigurðarson opnað markareikninginn sinn hjá KF, en hann er nýkominn frá KA. Höttur/Huginn jafnaði leikinn aðeins 5 mínútum síðar.
KF skoraði fljótlega aftur og voru komnir í 2-1 eftir 21 mínútu, þegar Alex Garðarsson skoraði.
Aftur voru gestirnir fljótir að jafna og á 28. mínútu var staðan orðin 2-2 en fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik sem var mjög líflegur. Jordan var settur inná hjá KF á 34. mínútu fyrri hálfleiks til að styrkja varnarleik liðsins. Í hálfleik kom svo Akil inná fyrir KF og útaf fór Sævar Þór Fylkisson.
Ljubomir Delic skoraði þriðja mark KF á á 60. mínútu og var staðan orðin 3-2. Höttur/Huginn brást strax við og gerðu tvöfalda skiptingu. Skömmu síðar jöfnuðu þeir aftur leikinn, en þeir fengu dæmda vítaspyrnu á 69. mínútu sem þeir skoruðu úr.
Fleiri mörk voru ekki skoruð og endaði þessi fjörugi leikur 3-3.