Knattspyrnufélag Fjallabyggðar mætti Hetti/Huginn í dag á Kjarnafæðismótinu. Marinó Snær Birgisson var fyrirliði KF í leiknum og nýr þjálfari liðsins er Daniel Kristiansen. Leikurinn var góð skemmtun fyrir áhorfendur og var nokkuð jafnræði framan af leik.

Höttur/Huginn komst yfir eftir 18 mínútna leik þegar KF gerði sjálfsmark. Marinó Snær Birgisson jafnaði leikinn fyrir KF um tíu mínútum síðar og kom markið eftir gott langskot fyrirliðans.

Höttur/Huginn skoraði sitt annað mark rétt fyrir leikhlé og leiddu 2-1 þegar dómarinn flautaði til hlés.

Sævar Þór Fylkisson jafnaði leikinn fyrir KF á 53. mínútu eftir góða byrjun í síðari hálfleik. Allt var í járnum þar til Höttur/Huginn skoraði á 73. mínútu og komust í 3-2.  KF missti svo leikmann af velli nokkrum mínútum síðar og léku manni færri í 15 mínútur.

Höttur/Huginn náði inn einu marki til viðbótar og unnu leikinn 4-2.

Mótið er æfingamót og eru þjálfarar duglegir við að prófa nýja leikmenn í þessum leikjum, sem eru til reynslu og einnig til að gefa yngri mönnum tækifæri með meistaraflokki.

Næsti leikur KF á mótinu veður ekki fyrr en á nýju ári, 11. janúar.