KF í þjálfaraleit þegar Slobodan kveður eftir tímabilið
Knattspyrnufélag Fjallabyggðar og Slobodan Milisic hafa gert samkomulag um að hann ljúki störfum eftir tímabilið sem þjálfari meistaraflokks karla eftir sex frábær ár.
Slobodan Milisic tók við KF árið 2017 á erfiðum tímapunkti þegar að liðið var að hefja sitt fyrsta tímabil í 3. deild eftir fall árinu áður. Uppbygging á liðinu hófst og setti Milo sinn svip á liðið strax. Mikil endurnýjun átti sér stað og á Milo hrós skilið fyrir starf sitt með uppbyggingu á leikmönnum sem hafa verið að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki. Milo stýrði KF liðinu í þrjú ár í 3. deild og er að klára sitt þriðja tímabil í 2. deild.
Sigurhlutfall þjálfarans er 51% en hann hefur stýrt KF í 149 leikjum, en hann hóf feril sinn sem þjálfari á Íslandi hjá KA árið 2006, svo þjálfaði hann BÍ árið 2008 áður en hann tók við KF árið 2017.
Sem leikmaður lék Slobodan með Leiftri, ÍA og KA hér á Íslandi, eða um 161 leik alls sem leikmaður hér á landi.
Leit að nýjum þjálfara er hafin og verður forvitnilegt að sjá hvort það finnist þjálfari í haust eða hvort það taki fram á næsta vor.
