Knattspyrnufélag Fjallabyggðar spilar í A-deild á Kjarnafæðismótinu í ár, sem einnig er kallað Norðurlandsmótið. Það er Knattspyrnudómarafélag Norðurlands sem skipuleggur þetta skemmtilega æfingamót.
Mótið fer fram í Boganum á Akureyri, KA velli og Húsavíkurvelli. Keppt verður í A og B deild karla og er A deildinni skipt í A og B riðla. Að auki er ein kvennadeild.
Liðin sem leika með KF í A-deildinni í A-riðli eru: KA, Þór-2, KFA og Höttur/Huginn.
Fyrsti leikurinn í riðlinum fór fram í gær þegar KA og Þór-2 mættust. KA vann leikinn 2-0.
Í B-riðlinum í A-deildinni eru: Þór, Dalvík, Magni, Völsungur og KA-2.
KF leikur fyrsta leikinn sinn laugardaginn 14. desember kl. 19:00 gegn Hetti/Huginn.
KF fær því fjóra góða æfingaleiki úr þessu að lágmarki, en riðlakeppni lýkur í lok janúars 2025.
Greint verður frá úrslitum KF á þessu móti.