Knattspyrnufélag Fjallabyggðar mætti liði Tindastóls í 7. umferð Íslandsmótsins í 3. deild karla á Sauðárkróksvelli þann 10. júní. Stólarnir voru ósigraðir eftir fyrstu 6 leikina á Íslandsmótinu og voru efstir í deildinni. KF var enn að leita að sínum fyrsta sigri í deildinni eftir þunga byrjun á mótinu. Tindastóll vann báða leikina í deildinni í fyrra gegn KF og unnu einnig bikarleikinn í vor. KF vann Stólana síðast í mótsleik KSÍ fyrir 4 árum og ætluðu að selja sig dýrt í þessum nágrannaslag. Síðustu leikir liðana hafa verið markaleikir og var því búist við skemmtilegum leik fyrir áhorfendur. Aðstæður á Sauðárkróksvelli eru góðar, spilað er á gervigrasi og er ágætis stúka fyrir áhorfendur og stutt í búningsklefa fyrir leikmenn.
Það er Siglufjarðar Apótek og Kjörbúðin Siglufirði sem styrkja umfjöllun um leiki meistaraflokks KF í sumar.
Umfjöllun:
Fyrirliði KF er enn meiddur og tók hann ekki þátt, Jakob Sindrason bar fyrirliðabandið í þessum leik. Tveir bræður voru í hópnum hjá KF í þessum leik, Alex Helgi Óskarsson í byrjunarliði og yngri bróðir hans Sebastían Amor Óskarsson á bekknum.
KF byrjaði fyrri hálfleikinn vel, settu góða pressu á gestina og voru ógnandi í sókninni. KF skoraði fyrsta mark leiksins eftir tæpar 10 mínútur. KF tók innkast ofarlega á vellinum og barst boltinn inn á teig til Jhoel Adrian Sarraude sem tók boltann vel niður og snéri boltanum í netið, en boltinn hafði líklega viðkomu í varnarmann. Frábærlega vel gert og staðan orðin 0-1.
KF hélt áfram að pressa og Tindastóll var í vandræðum með að verjast. Um miðjan síðari hálfleik var Tindastóll með boltann í vörninni og gættu þeir ekki að pressu KF sem unnu boltann fyrir utan vítateig og náðu skoti á markið sem markmaðurinn varði í slána, en sóknarmaður KF fylgdi vel á eftir og skilaði boltanum í netið. Staðan orðin nokkuð óvænt 0-2 fyrir KF. Markið gerði Pietro Fontana, nýr leikmaður KF og hans fyrsta mark fyrir félagið.
Tindastóll setti meiri þunga í sóknina og fengu aukaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks við vítateigshornið. Aukaspyrnan rataði á kollinn á leikmanni þeirra sem minnkaði muninn í 1-2.
Bæði lið fengu áfram færi, en markmaður Tindastóls varði tvívegis vel í fyrri hálfleik, en KF hefði átt að gera betur í annað skiptið. Staðan var 1-2 í hálfleik og var barist um hvern einasta bolta.
Eftir gott spil í sókn KF í byrjun síðari hálfleiks, þá kom dauðafæri, sem nýttist ekki, boltinn fór rétt framhjá markinu. KF skoraði svo frábært mark um miðjan síðari hálfleik þegar Pietro Fontana skoraði með bakfallsspyrnu og var það óverjandi fyrir markmann Tindastóls sem gerði ekki tilraun til að ná til boltans. Staðan orðin 1-3 og frábær barátta í gangi hjá KF.
KF bakkaði töluvert síðustu 15 mínútur leiksins og pressaði Tindastóll að þeim og voru meira með boltann.
Agnar Óli Grétarsson kom inná í sóknina hjá KF síðustu 10 mínúturnar eða svo, og átti góða spretti og hélt boltanum vel þegar lítið var eftir af leiknum.
KF hélt þetta út og fögnuðu vel fyrsta sigrinum í deildinni á sterkum útivelli. Lokatölur 1-3 fyrir KF.



