Knattspyrnufélag Fjallabyggðar og Ungmennafélagið Þróttur Vogum mættust í 20. umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu í 2. deildinni. Leikið var á Vogaídýfuvellinum í Vogum á Vatnsleysuströnd á Reykjanesi.

Siglufjarðar Apótek er aðalstyrktaraðili umfjallana um meistaraflokk KF í sumar eins og undanfarin ár. Á heimasíðu Siglufjarðar Apóteks getur þú pantað lyf og keypt vítamín og bætiefni, hjúkrunarvörur og snyrtivörur.

Upphitun:

Búist var við erfiðum leik fyrir KF, en Þróttur vann fyrri leikinn 0-5 og er liðið í 3. sæti deildarinnar og á möguleika á að komast upp um deild. KF gat með sigri eða jafntefli komust úr fallsæti deildarinnar og var því mikið í húfi fyrir liðið. Daniel Kristiansen var í leikbanni hjá KF í þessum leik og Sævar Þór Fylksson var meiddur, en í liðstjórn.

Tveir leikmenn Þróttar voru í banni í þessum leik, en í liði Þróttar er þriðji markahæsti maður 2. deildar, Jóhann Þór Arnarsson, og var hann í treyju númer 38 í þessum leik en hann hefur gert 11 mörk í 18 leikjum fyrir þennan leik.

Þróttur þurfti á sigri að halda til að nálgast Völsung í 2. sæti deildarinnar, en 4 stig skyldu liðin að áður en leikurinn hófst þar sem Völsungur vann Kormák/Hvöt örugglega 4-0. Þróttur þurfti því þrjú stig til að minnka bilið aftur í 1 stig og vera enn með möguleikann á því að komast upp um deild.

Þróttur var ósigrað í 5 síðustu leikum , með fjóra sigra en KF var með tvo sigra af síðustu 5 leikjum.

Umfjöllun:

Heimamenn byrjuðu af krafti og fljótlega var ljóst í hvað stefndi í þessum leik. Þróttur skoraði strax á 8. mínútu og eftir tæpar 20 mínútur var staðan orð 3-0. Markaskorarinn Jóhann Þór gerði svo fjórða markið og var staðan 4-0 í hálfleik.

Þjálfari KF gerði þrefalda skiptingu strax í hálfleik og kom Akil, Jakob Auðun og Þorsteinn Már inná fyrir Alex Mána, Agnar Óla og Marinó Snæ.

Þróttur gátu leyft sér að gera þrefalda skiptingu á 60. mínútu og tvöfalda skiptingu fimm mínútum síðar, þeir höfðu því klárað sínar skiptingar þegar 25 mínútur voru eftir.

KF tókst ekki að nýta sér færin í síðari hálfleik en Þróttur bætti við einu marki í uppbótartíma og voru því lokatölur 5-0.

Nú eru tveir leikir eftir af Íslandsmótinu og KF er í næstneðsta sæti, en aðeins stigi á eftir næsta liði. Sigur eða jafntefli í næsta leik og hagstæð úrslit annara leikja er það sem getur bjargað tímabilinu.

 

Siglufjarðar Apótek er aðalstyrktaraðili umfjallana um meistaraflokk KF í sumar eins og undanfarin ár. Á heimasíðu Siglufjarðar Apóteks getur þú pantað lyf og keypt vítamín og bætiefni, hjúkrunarvörur og snyrtivörur.