KF/Dalvík mætti Þrótti-6 á Reycup síðdegis í dag í útsláttarkeppninni. Þróttur var skráð A-lið E-riðli og hafði liðið tapað öllum þremur leikjunum í sínum riðli fyrir þennan leik. KF/Dalvík hafið hinsvegar unnið alla sína leiki fram til þessa og komu með fullt sjálfstraust í leikinn. Leikurinn fór fram á vellinum við TBR húsið í Laugardalnum. Bæði liðin voru að renna aðeins blint í sjóinn með styrkleika hvors annars fyrir leikinn. Nokkra mínútuna töf var á leiknum þar sem leiknum á undan hafði seinkað.

Völlurinn var blautur og var létt rigning mestallan leikinn. KF/Dalvík byrjaði með boltann og léku í átt að Langholtsskóla í fyrri hálfleik og lék Þróttur í átt að TBR húsinu.

Liðin voru varkár á upphafsmínútum leiksins og voru að þreifa fyrir sér. Leikurinn byrjað svo að opnast meira og liðin fóru að fá færi.

KF/Dalvík átti góða sókn eftir um 8. mínútur, en markmaður Þróttar varði vel og fékk KF/Dalvík hornspyrnu sem nýttist ekki. Þróttur fékk í framhaldinu dauðafæri en boltinn fór framhjá.

KF/Dalvík fékk í framhaldinu góðar sóknir og færi en markmaður Þróttar var hávaxinn og varði vel. Þróttur fékk gott færi á 15. mínútu en markmaður KF/Dalvík varði vel og í horn. Úr horninu kom góður bolti beint á markið og skoraði Þróttur fyrsta markið, sem var annaðhvort beint úr hornspyrnunni eða sjálfsmark, en fréttaritari sá það ekki greinilega. Staðan 0-1 eftir jafnan fyrri hálfleik.

Eftir um 20 mínútur í fyrri hálfleik fékk KF/Dalvík dauðafæri en markmaður Þróttar varði enn og aftur vel og hélt þeim inn í leiknum.

KF/Dalvík jafnaði leikinn þegar langt var liðið á síðari hálfleik, markið kom nánast upp úr engu en það var leikmaður nr. 10 (Ásgeir) sem gerði markið.

KF/Dalvík gerði annað mark rétt fyrir hálfleik, eftir gott gegnum brot sem markmaður Þróttar náði ekki að verja. Staðan orðin 2-1. Leikmaður nr. 10 (Ásgeir) gerði þetta mark einnig.

Þróttur fékk gott færi eftir þetta og voru óheppnir að ná ekki að jafna leikinn, en skotið var beint á markmann KF/Dalvík.

Staðan var 2-1 í hálfleik en leikurinn var heilt yfir jafn fram að þessu og bæði lið fengu góð færi.

KF/Dalvík fékk ágætis færi á 5 mínútu síðari hálfleiks en markmaður Þróttar varði vel.

KF/Dalvík fékk fljótlega annað dauðafæri en Þróttur varði á línu. Skömmu síðar komst KF/Dalvík inn fyrir vörn Þróttar og gerðu gott mark eftir gegnumbrot. Staðan orðin 3-1. Markmaður Þróttar meiddist í fæti eftir þriðja mark KF/Dalvík og lág í grasinu og fékk að lokum skiptingu.

Þegar rúmar 10 mínútur voru eftir af seinni hálfleik átt KF/Dalvík góða skyndisókn og komst Sæþór einn inn fyrir vörn Þróttar og afgreiddi boltann glæsilega. Staðan orðin 4-1. Skömu síðar komst Ásgeir upp vinstri kantinn hjá KF/Dalvík og átti gott skot að marki en boltinn fór rétt framhjá. Skömmu síðar var Ásgeir aftur í góðu færi hjá KF/Dalvík en nú fór boltinn í stöngina, vel útfærð sókn hjá KF/Dalvík.

Þegar um 4 mínútur voru eftir skoraði KF/Dalvík mark, en dæmd var rangstæða og markið ógilt. Staðan enn 4-1.

Rétt fyrir leikslok skoraði Sæþór aftur fyrir KF/Dalvík eftir góða skyndisókn og vippaði hann boltanum yfir markmanninn á glæsilegan máta. Staðan orðin 5-1 og sigurinn í höfn.

Fleiri mörk voru ekki skoruð og enn einn frábær sigur hjá KF/Dalvík. Þróttur átti góða spretti og voru óheppnir með nokkur góð færi í leiknum eins og KF/Dalvík.

Næsti leikur KF/Dalvík er laugardaginn 25. júlí í Safamýrinni gegn Uppveitum kl. 13:00.