KF/Dalvík mætti KA-4 í E-riðli B-liða á Reycup síðdegis í dag og fór leikurinn fram í Álftamýrinni á gamla Fram svæðinu. Liðið þurfi því að koma sér á milli staða eftir leikinn gegn Selfossi í morgun.
KF/Dalvík liðið var enn í góðum gír og engin þreytumerki að sjá á liðinu, enda hafði þjálfarinn gert reglulega skiptingar í fyrri leik dagsins til að hvíla menn.
KA liðið átt einnig leik í morgun 6-0 fyrir Tindastól í riðlinum.
KF/Dalvík liðið var sterkari aðilinn í leiknum sem lauk með 7-3 sigri KF/Dalvík.
Liðið er því efst í riðlinum eftir fyrstu tvo leiki dagsins, en leikin var heil umferð í þessum riðli. KF/Dalvík er með 6 stig og markatöluna 13-5 en Tindastóll-2 er með jafnmörg stig og markatöluna 10-2.
Liðin leika á morgun því úrslitaleik um efsta sæti riðilsins. Leikurinn hefst kl. 10:00 á vellinum Jötunheimar, sem er við Suðurlandsbrautina og fyrir ofan Húsdýragarðinn. Búast má við jöfnum leik. Útsláttarkeppnin hefst svo síðar á föstudaginn og heldur áfram á laugardaginn.