Knattspyrnumótið Reycup hefst á fimmtudaginn á Þróttarasvæðinu í Reykjavík. KF/Dalvík er með eitt sameiginlegt lið á mótinu í ár og er það U-14 ára drengjalið (4. flokkur). Liðið spilar í B riðli í E-flokki á mótinu ásamt Selfossi, Tindastól og KA. Liðið spilar gegn Selfoss-4 strax á fimmtudaginn kl. 11:00 á vellinum  Miðheimar, sem hefur einnig verið nefndur Þríhyrningur. Síðar sama dag þarf liðið að koma sér úr Laugardalnum í Safamýrina og spila gegn KA-4 kl. 16:00.

Föstudagsleikurinn verður á vellinum Jötunheimar, sem hefur áður verið kallaður Suðurlandsbraut, er leikurinn gegn Tindastól-2 og hefst kl. 10:00.

Síðdegis á föstudag og á laugardagsmorgun hefst útsláttarkeppnin. Úrslitaleikir fara fram á sunnudaginn.