Lokaleikur hjá KF/Dalvík í 4. flokki karla á Reycup var síðdegis í dag gegn heimamönnum í Þrótti 4.  KF/Dalvík höfðu unnið fyrri leik dagsins og mættu því aðeins þreyttari í þennan leik. Þróttur var með einn sigur og eitt tap fyrir þennan leik en KF/Dalvík þurfti stóran sigur til að vinna riðilinn þar sem Valur vann Selfoss 1-7.

Svo fór að aðeins eitt mark var skorað og var það KF/Dalvík sem átti markið og endaði leikurinn 1-0. Liðið endaði því með 7 stig eins og Valur í þessum riðli en KF/Dalvík var með lakara markahlutfall og endaði í 2. sæti.

Á morgun eiga bæði karla- og kvennaliðið leiki snemma dags. Útsláttarkeppnin hefst og mætir KF/Dalvík í 4. flokki kvenna liði Þróttar 3 kl. 9:00 á gervigrasvellinum sem nefnist Sund, en hann er á gamla Valbjarnarvallarsvæðinu. Strákarnir mæta ÍBV 1 á grasvellinum við Suðurlandsbraut kl. 10:00.

Fleiri leikir gætu verið síðar um daginn en það kemur í ljós þegar úrslit leikjanna liggja fyrir.