Sameiginlegt lið KF/Dalvíkur í 4. flokki karla mætti Selfossi í fyrsta leik dagsins hjá liðinu. Eftir jafntefli í leik gærdagsins voru þeir staðráðnir í að sækja góð úrslit. Liðið var að leika mjög vel í fyrri hálfleik og opnaðist vörn Selfoss oft og komu góð tækifæri fyrir KF/Dalvík. Staðan var orðin 2-0 fyrir KF/Dalvík eftir um 8. mínútur. Staðan var svo orðin 3-0 eftir um 15. mínútur. Spilið var að ganga mjög vel og voru flest mörkin eftir góðan samleik þeirra. Staðan var 5-0 í hálfleik, en Selfossi gekk mjög illa að skapa sér færi framávið og áttu ónákvæmar sendingar sína á milli sem KF/Dalvík gerði vel að vinna úr og skapa sér færi.
Selfoss strákarnir komu sprækari inn í síðari hálfleik og var einnig tempóið og ákafinn minni hjá KF/Dalvík enda miklir yfirburðir í fyrri hálfleik. Selfossi gerði betur í spilinu í síðari hálfleik og komust þeir framar á völlinn og þannig fengu þeir nokkur ágæt marktækifæri. Þeir gerðu vel og minnkuðu muninn í 5-1 fljótlega í síðari hálfleik. Þetta gaf þeim meira sjálfstraust og gekk boltinn betur á milli þeirra.
KF/Dalvík bætti við einu marki og var staðan 6-1. Selfossi átti góða sókn þegar um 5 mínútur voru eftir af leiknum og var sóknarmaður þeirra tæklaður fyrir utan teig af aftasta varnarmanni KF/Dalvík og fékk hann beint rautt spjald frá dómara leiksins. Selfoss skoraði örugglega úr aukaspyrnunni sem var á vítateigslínunni og var staðan orðin 6-2 og allt annað að sjá til strákanna frá Selfossi.
Fleiri mörk voru ekki skoruð og voru lokatölur 6-2. Frábær sigur hjá KF/Dalvík.







