Um helgina fer fram Meistaramót ÍA í badminton á Akranesi. Það eru 60 leikmenn skráðir til leiks og keppt verður í öllum greinum í þremur deildum. Það eru fjórir leikmenn frá Tennis- og Badmintonfélagi Siglufjarðar sem taka þátt í mótinu, en það eru Ikmal, Sebastían, Marínó og Anna María.
Á laugardeginum verður keppt í einliðaleik og hefjast fyrstu leikir kl 10:00. Á sunnudeginum er keppt í tvíliða- og tvenndarleik og hefjast fyrstu leikir kl 09:00.