Kennsla á haustönn í Menntaskólanum á Tröllaskaga hefst miðvikudaginn 19. ágúst kl. 9:00. Stundatöflur nemenda verða aðgengilegar á Innu þann 14. ágúst. Þar geta nemendur einnig séð áfanga sína og námsgagnalista við hvern áfanga.
Nauðsynlegt er að allir staðnemar mæti með fartölvur. Fjarnemar fá upplýsingar sendar frá umsjónarkennara og kennurum áfanga upp úr helgi.