Allir áfangar sem kenndir hafa verið við Menntaskólann á Tröllaskaga í Ólafsfirði hafa kennarar skólans búið til, er þar bæði um að ræða alla grunnáfanga sem og mikinn fjölda valáfanga. Alls er um að ræða á fjórða hundrað áfanga. Einkunnarorð skólans: Frumkvæði – Sköpun – Áræði, endurspeglast í þessum áföngum sem og kennsluháttum, námsaðferðum, skipulagi og viðfangsefnum.

Á þessari haustönn eru þrír nýsmíðaðir áfangar í boði. Einn þeirra lýtur að afreksíþróttaþjálfun og er sniðinn að þörfum þeirra sem stunda slíka þjálfun, annar snýst um erfðafræði þar sem meginþættir eru erfðafræði mannsins og líftækni og síðan er spennandi áfangi; erlent samstarfsverkefni þar sem unnið er með menningararfleifð.

Margir áfangar urðu til á fyrstu árum skólans en nýir áfangar hafa orðið til á hverri önn síðan eftir þörfum og áhuga nemenda sem kennara.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef skólans.