Karlalið Blakfélags Fjallabyggðar mætti UMFL, eða Laugdælingum í Íslandsmótinu í blaki í Fylkishöllinni snemma í morgun. BF strákarnir þurftu að taka daginn snemma og vera ferskir og tilbúnir í leik á slaginu 8:00 í morgun.

BF voru seinir í gang í fyrstu hrinu en vöknuðu til lífsins þegar leið á hrinuna. UMFL leiddi í upphafi 3-6,  4-8 og 7-12. Smátt og smátt minnkaði BF forskotið og jöfnuðu leikinn 17-17 og tók þá UMFL hlé.

BF skoraði þá sjö stig í röð og í millitíðinni tók UMFL annað hlé. Frábær endasprettur hjá BF og þeir unnu fyrstu hrinu 25-20.

BF byrjaði næstu hrinu með látum og komust í 7-2, 9-5 og 12-7 og tók þá UMFL hlé. UMFL skoraði þá 7 stig í röð og komust yfir 12-14. Laugdælingar voru komnir í gang og náðu upp forskoti 16-21 og tók nú BF hlé. UMFL voru sterkari í lokin og unnu hrinuna 18-25 og jöfnuðu leikinn 1-1.

Oddahrinan var jöfn framan af, 4-4, 8-8 og 10-8 fyrir BF og tók þá UMFL hlé. UMFL skoraði þá áfram og komust í góða stöðu 11-14. BF náði einu stigi enn og tóku hlé í 12-14, en það voru Laugdælingar sem áttu lokastigið og unnu 12-15 og leikinn 1-2.