Hin árlega Jónsmessuhátíð á Hofsósi hófst í gær og er hún orðin fastur liður hjá mörgum fjölskyldum enda mikið um að vera og skemmtunin í fyrirrúmi.
Í dag, laugardaginn 20. júní hefst hátíðin með knattspyrnumóti karla og kvenna á Hofsósvelli en þar er keppt í tveimur deildum. Myndasýning Finns Sigurbjörnssonar verður milli kl. 11 og 14 og tjaldmarkaður hefst kl. 12 og einnig grillveisla þar sem í boði verða fríar pylsur og drykkir fyrir börnin. Hestamannafélagið Svaði stendur fyrir hópreið kl 13, góðakstur á dráttarvélum kl. 14 og dagurinn endar á stórdansleik í Höfðaborg þar sem hljómsveitin Von ásamt Magna Ásgeirs heldur uppi fjörinu.
Á sunnudeginum er í boði að fara dagsferð á slóðir Guðrúnar frá Lundi með leiðsögn Kristínar S. Einarsdóttur. Farið er frá Sauðárkróki kl 9 og Hofsósi kl 9:30.