Um helgina fór framm lokahóf meistaraflokks Knattspyrnufélags Fjallabyggðar. Þar voru veitt verðlaun fyrir tímabilið og vegna fjölda leikja fyrir félagið.
Verðlaun:
- Jón Frímann Kjartansson var valinn leikmaður ársins
- Thomas Lamaille var valinn leikmaður leikmanna.
- Sölvi Sigurðarsson var valinn efnilegastur.
- Jhoel Adrian Sarraude var markahæsti leikmaður tímabilsins
- Alex Helgi Óskarsson hlaut Nikulásarbikarinn.
Marinó Snær Birgisson fékk viðurkenningu fyrir að ná þeim áfanga að leika 100 leiki í deild með KF og Grétar Áki Bergsson 200 leiki fyrir KF.
Jhoel Adrian Sarraude skoraði 11 mörk í 22 leikjum í sumar.




