Jólaloppumarkaður verður haldinn í Brimsölum í Ólafsfirði dagana 29.-30. nóvember frá kl. 12.00-16.00. Hægt er að leigja borð fyrir 7500 kr. fyrir helgina og selja sitt handverk og vörur.
Heitt kakó, kaffi og piparkökur í boði fyrir gesti. Það verður jólastemning þessa helgina í Brimsölum.