Knattspyrnufélag Fjallabyggðar stendur fyrir jólahappdrætti í desember.  Vinningarnir eru hver öðrum glæsislegri og er heildarverðmæti þeirra um 700.000 krónur.
Miðaverð er 2000 kr en einnig verður hægt að gera kjarakaup og fá þrjá happdrættismiða fyrir 5000 kr.
Dregið verður úr seldum miðum mánudaginn 16. desember hjá Sýslumanni Norðurlands eystra.
Gengið verður í hús í Fjallabyggð á næstu dögum og einnig verður hægt að kaupa miða á facebooksíðu KF.