Jólaball Siglfirðingafélagsins verður í sal KFUM og KFUK við Holtaveg í Reykjavík, fimmtudaginn 27.desember kl. 17:00.
Jólasveinarnir koma og gleðja börnin. Fjörkarlarnir spila undir dansi kringum jólatréð og allir fá glaðning!
Jólaballsnefndin býður uppá heitt súkkulaði og vöfflur.