Jökull Bergmann ætlar í tilefni fimmtugsafmælis síns að gefa Skíðafélagi Dalvíkur 70 metra yfirbyggt töfrateppi, færiband fyrir fólk á skíðum.
Markmiðið er að gefa allra yngstu skíðakrílunum eins góða byrjun og mögulegt er, en um leið stórbæta aðstöðu fyrir byrjendur og fjölskyldur sem sækja svæðið heim. Með því styðjum við við framtíðaruppbyggingu Skíðafélagsins og styrkjum rekstrargrundvöll Skíðasvæði Dalvíkur til framtíðar.
Verkefnið er nokkuð stórt í sniðum og hefur verið í undirbúningi síðasta hálfa árið. Töfrateppið er nú þegar komið til landsins og uppsetning hefst snemma í haust.
Þar sem um er að ræða verkefni upp á nokkra tugi milljóna og er góður stuðningur frá mörgum aðilum.
Dalvíkurbyggð hefur til dæmis lagt 10 milljónir króna í verkefnið. Eimskip sá um allan flutninginn frá Ítalíu og upp í Böggvisstaðafjall.
Kollgáta Arkitektar, með Ingó og Andreu í broddi fylkingar, hafa unnið hörðum höndum að hönnun og útfærslu stórskemmtilegrar yfirbyggingar og Björgvin Smári Jónsson verkfræðingur ætlar að sjá til þess að þetta smelli nú allt rétt saman.
Þeir sem vilja styðja við þetta verkefni er bent á söfnunarreikning:
Reikningur: 0177-15-200238
Bergmenn ehf.
Kt.: 430657-0119