Íþróttasálfræðingurinn Bjarni Mark heimsótti í vikunni 1. – 5. bekk í Grunnskóla Fjallabyggðar og hélt fyrirlestur um framkomu, hegðun og  jákvætt viðhorf. Nemendur skólans voru áhugasamir að hlusta á Bjarna með þennan gagnlega fyrirlestur.

 

Fyrirlesturinn fjallaði meðal annars um:

  •  Framkomu, hegðun og virðingu í skóla og íþróttum.
  •  Jákvætt viðhorf og hollt og gott hugarfar.
  •  Að setja sér lítil og einföld markmið.
  •  Mikilvægi þess að vera góðar manneskjur.