Í gær fór fram uppskeruhátíð íþróttastarfs í Fjallabyggð. Athöfnin fór fram í Menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði þar sem besta og efnilegasta íþróttafólk Fjallabyggðar var verðlaunað, íþróttamaður ársins var útnefndur og fleiri viðurkenningar voru veittar.
Íþróttamaður ársins var valinn Grétar Áki Bergsson, fyrirliði knattspyrnuliðs KF,
Björn Þór Ólafsson fékk heiðursviðurkenningu fyrir óeigingjarnt starf að iþróttamálum í Fjallabyggð.
Íþróttaviðurkenning er veitt til íþróttamanns sem hefur náð frábærum árangri í sinni íþróttagrein fyrir íþróttafélag utan Fjallabyggðar. Í ár hlaut þessa viðurkenningu Anna Brynja Agnarsdóttir fyrir frábæran árangur í knattspyrnu á árinu 2019, en hún er leikmaður Þórs/KA auk þess að leika með U15 ára landsliðinu.
Bestu og efnilegustu íþróttamenn hverrar greinar voru eftirtaldir:
Blak:
Ung og efnileg – Anna Brynja Agnarsdóttir
Ungur og efnilegur – Patrick Gabriel Bors
Blakmaður ársins – Ólafur Björnsson
Badminton:
Ung og efnileg – Dómhildur Ýr Gray
Ungur og efnilegur – Hörður Ingi Kristjánsson
Knattspyrna:
Ung og efnileg – Embla Þóra Þorvaldsdóttir
Ungur og efnilegur – Þorsteinn Þorvaldsson
Knattspyrnumaður ársins – Grétar Áki Bergsson
Hestaíþróttir:
Ung og efnileg – Marlís Jóna Karlsdóttir
Ungur og efnilegur – Hörður Ingi Kristjánsson
Golf:
Ung og efnileg – Sara Sigurbjörnsdóttir
Ungur og efnilegur – Einar Ingi Óskarsson
Kylfingur ársins – Sigurbjörn Þorgeirsson
Skíði:
Ung og efnileg – Amalía Þórarinsdóttir
Ungur og efnilegur – Andri Snær Elefsen
Kraftlyftingar:
Kraftlyftingamaður ársins – Hilmar Símonarson
Skotíþróttir:
Skotmaður ársins – Rögnvaldur Jónsson
Boccia:
Bocciamaður ársins – Sigurjón Sigtryggsson