Kjöri íþróttamanns UMSE verður lýst í Safnaðarheimili Dalvíkurkirkju miðvikudaginn 9. janúar næstkomandi. kl. 18:00. Þar verða einnig veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur í íþróttum á árinu 2018. Viðburðurinn er opinn öllum.
Tilnefndir eru:
Skíðamaður ársins – Andrea Björk Birkisdóttir
Borðtennismaður ársins – Ingvi Vaclav Alfreðsson
Hestaíþróttamaður ársins – Svavar Örn Hreiðarsson
Sundmaður ársins – Elín Björk Unnarsdóttir
Golfmaður ársins – Amanda Guðrún Bjarnadóttir
Bandýmaður ársins – Jónas Hjartarson
Frisbýgolfari ársins – Mikael Máni Freysson
Knattspyrnumaður ársins – Snorri Eldjárn Hauksson
Frjálsíþróttamaður ársins – Guðmundur Smári Daníelsson
Badmintonmaður ársins – Ólafur Ingi Sigurðsson
Heimild: umse.is