Íslenskubrúin er ný námsbraut í Menntaskólanum Akureyri fyrir erlenda nemendur á framhaldsskólaaldri. Brautin var áður kennd í Verkmenntaskólanum á Akureyri en nú hefur MA tekið við náminu. Lögð er áhersla á að kenna nemendum íslensku þannig að þeir geti í framhaldinu stundað sjálfstætt nám í íslenskum framhaldsskólum. Jóhanna Sveinbjörnsdóttir er verkefnastjóri og Herdís Helgadóttir er kennari á íslenskubrúnni í MA.
Reynslan úr VMA sýndi að brottfall var mikið þegar nemendur sátu í hefðbundnum bekkjum án þess að skilja kennsluna. Nemendur vinna fjölbreytt verkefni. Þó að íslenskan sé í fyrirrúmi daglega reyna kennararnir að gera námið lifandi og fjölbreytt.

Herdís er MA-stúdent og hefur lokið námi í fjölmiðlafræði, stjórnun og stefnumótun auk kennslufræði framhaldsskóla.

Jóhanna er mannfræðingur og hefur lengst af unnið í ferðaþjónustu á Grænlandi.